Svo langt sem austrið er frá vestrinu, svo langt hefir hann fjarlægt afbrot vor frá oss.   

Sálmur 88

 Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.-1- Ljóð. Kóraíta-sálmur. Til söngstjórans. Syngist með Makalat-lagi. Hemans-maskíl Esraíta.-2- Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.-3- Lát bæn mína koma fyrir þig, hneig eyra að hrópi mínu,-4- því að sál mín er mett orðin af böli, og líf mitt nálægist Hel.-5- Ég er talinn með þeim, sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -6- Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni, er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.-7- Þú hefir lagt mig í gryfju undirheima, í myrkrið niðri í djúpinu.-8- Reiði þín hvílir á mér, og alla boða þína hefir þú látið skella á mér. Sela -9- Þú hefir fjarlægt frá mér kunningja mína, gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -10- augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig, Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.-11- Gjörir þú furðuverk vegna framliðinna, eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? Sela -12- Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni, frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?-13- Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?-14- En ég hrópa til þín, Drottinn, og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -15- Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni, hylur auglit þitt fyrir mér? -16- Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku, ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota. -17- Reiðiblossar þínir ganga yfir mig, ógnir þínar eyða mér. -18- Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn, lykja um mig allar saman.  -19- Þú hefir fjarlægt frá mér ástvini og félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.

Leitaðu í Sálma Davíðs

Ef þú ert: dapur, eða niðurdreginn

í Sálma

27 34 42 43 88 143