Svo langt sem austrið er frá vestrinu, svo langt hefir hann fjarlægt afbrot vor frá oss.   

Sálmur 27 

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.  -1- Davíðssálmur. Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast?-2- Þegar illvirkjarnir nálgast mig til þess að fella mig, þá verða það andstæðingar mínir og óvinir, sem hrasa og falla.-3- Þegar her sest um mig, óttast hjarta mitt eigi, þegar ófriður hefst í gegn mér, er ég samt öruggur.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -4- Eins hefi ég beðið Drottin, það eitt þrái ég: Að ég fái að dveljast í húsi Drottins alla ævidaga mína til þess að fá að skoða yndisleik Drottins, sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans.-5- Því að hann geymir mig í skjóli á óheilladeginum, hann felur mig í fylgsnum tjalds síns, lyftir mér upp á klett.-6- Þess vegna hefst upp höfuð mitt yfir óvini mína umhverfis mig, að ég með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans, syngja og leika Drottni.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -7- Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt, sýn mér miskunn og svara mér!

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -8- Mér er hugsað til þín, er sagðir: Leitið auglitis míns! Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -9- Hyl eigi auglit þitt fyrir mér, vísa þjóni þínum eigi frá í reiði. Þú hefir verið fulltingi mitt, hrind mér eigi burt og yfirgef mig eigi, þú Guð hjálpræðis míns.-10- Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig, tekur Drottinn mig að sér.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -11- Vísa mér veg þinn, Drottinn, leið mig um slétta braut sakir óvina minna.-12- Ofursel mig eigi græðgi andstæðinga minna, því að falsvitni rísa í gegn mér og menn er spúa rógmælum.-13- Ég treysti því að fá að sjá gæsku Drottins á landi lifenda!

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -14- Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin.

 

Leitaðu í Sálma Davíðs

dapur, eða niðurdreginn

í Sálma

27 34 42 43 88 143