Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefir Drottinn sýnt miskunn þeim er óttast hann.   

Sálmur 42

-1- Til söngstjórans. Kóraítamaskíl.

-2- Eins og hindin, sem þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, ó Guð.

-3- Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifanda Guði. Hvenær mun ég fá að koma og birtast fyrir augliti Guðs?

-4- Tár mín urðu fæða mín dag og nótt, af því menn segja við mig allan daginn: Hvar er Guð þinn?

-5- Um það vil ég hugsa og úthella sál minni, sem í mér er, hversu ég gekk fram í mannþrönginni, leiddi þá til Guðs húss með fagnaðarópi og lofsöng, með hátíðaglaumi.

-6- Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.

-7- Guð minn, sál mín er beygð í mér, fyrir því vil ég minnast þín frá Jórdan- og Hermonlandi, frá litla fjallinu.

-8- Eitt flóðið kallar á annað, þegar fossar þínir duna, allir boðar þínir og bylgjur ganga yfir mig.

-9- Um daga býður Drottinn út náð sinni, og um nætur syng ég honum ljóð, bæn til Guðs lífs míns.

-10- Ég mæli til Guðs: Þú bjarg mitt, hví hefir þú gleymt mér? hví verð ég að ganga harmandi, kúgaður af óvinum?

-11- Háð fjandmanna minna er sem rotnun í beinum mínum, er þeir segja við mig allan daginn: Hvar er Guð þinn?

-12- Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn. 

Leitaðu í Sálma Davíðs

dapur, eða niðurdreginn

í Sálma

27 34 42 43 88 143