Hann hefir eigi breytt við oss eftir syndum vorum og eigi goldið oss eftir misgjörðum vorum,   

Sálmur 143

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -1- Davíðssálmur. Drottinn, heyr þú bæn mína, ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu. -2- Gakk eigi í dóm við þjón þinn, því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -3- Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar, lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir. -4- Andi minn örmagnast í mér, hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.  -5- Ég minnist fornra daga, íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna. -6- Ég breiði út hendurnar í móti þér, sál mín er sem örþrota land fyrir þér. Sela -7- Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér, svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar. -8- Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg, er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.-9- Frelsa mig frá óvinum mínum, Drottinn, ég flý á náðir þínar.-10- Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -11- Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns, leið mig úr nauðum sakir réttlætis þíns. -12- Lát þú óvini mína hverfa sakir trúfesti þinnar, ryð þeim öllum úr vegi, er að mér þrengja, því að ég er þjónn þinn.

Leitaðu í Sálma Davíðs

Ef þú ert: dapur, eða niðurdreginn

í Sálma

27 34 42 43 88 143