Ég segi við Drottin: Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.   

Sálmur 32

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-1- Davíðsmaskíl. Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin.-2- Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð, sá er eigi geymir svik í anda.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-3- Meðan ég þagði, tærðust bein mín, allan daginn kveinaði ég,-4- því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér, lífsvökvi minn þvarr sem í sumarbreiskju. Sela -5- Þá játaði ég synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Ég mælti: Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni, og þú fyrirgafst syndasekt mína. Sela

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-6- Þess vegna biðji þig sérhver trúaður, meðan þig er að finna. Þótt vatnsflóðið komi, nær það honum eigi.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-7- Þú ert skjól mitt, þú leysir mig úr nauðum, með frelsisfögnuði umkringir þú mig. Sela -8- Ég vil fræða þig og vísa þér veginn, er þú átt að ganga, ég vil kenna þér og hafa augun á þér:-9- Verið eigi sem hestar eða skynlausir múlar; með taum og beisli verður að temja þrjósku þeirra, annars nálgast þeir þig ekki.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-10- Miklar eru þjáningar óguðlegs manns, en þann er treystir Drottni umlykur hann elsku.-11- Gleðjist yfir Drottni og fagnið, þér réttlátir, kveðið fagnaðarópi, allir hjartahreinir! 

Leitaðu ef þú ert: sekur, sakbitinn,

í Sálma

19 32 38 51