Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum   

Sálmur 38

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-1- Davíðssálmur. Minningarljóð.-2- Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.-3- Örvar þínar standa fastar í mér, og hönd þín liggur þungt á mér.-4- Enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum sakir reiði þinnar, ekkert heilt í beinum mínum sakir syndar minnar.-5- Misgjörðir mínar ganga mér yfir höfuð, sem þung byrði eru þær mér of þungar orðnar.-6- Ódaun leggur af sárum mínum, rotnun er í þeim sakir heimsku minnar.-7- Ég er beygður og mjög bugaður, ráfa um harmandi daginn langan.-8- Lendar mínar eru fullar bruna, og enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-9- Ég er lémagna og kraminn mjög, kveina af angist hjartans.-10- Drottinn, öll mín þrá er þér kunn og andvörp mín eru eigi hulin þér.-11- Hjarta mitt berst ákaft, kraftur minn er þrotinn, jafnvel ljós augna minna er horfið mér.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-12- Ástvinir mínir og kunningjar hörfa burt fyrir kröm minni, og frændur mínir standa fjarri.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-13- Þeir er sitja um líf mitt, leggja snörur fyrir mig, þeir er leita mér meins, mæla skaðræði og hyggja á svik allan liðlangan daginn.14- En ég er sem daufur, ég heyri það ekki, og sem dumbur, er eigi opnar munninn,-15- ég er sem maður er eigi heyrir og engin andmæli eru í munni hans.-16- Því að á þig, Drottinn, vona ég, þú munt svara mér, Drottinn minn og Guð minn,

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -17- því að ég segi: Lát þá eigi hlakka yfir mér, eigi hælast um af því, að mér skriðni fótur.-18- Því að ég er að falli kominn, og þjáningar mínar eru mér æ fyrir augum.-19- Ég játa misgjörð mína, harma synd mína,-20- og þeir sem án saka eru óvinir mínir, eru margir, fjölmargir þeir er hata mig að ástæðulausu.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-21- Þeir gjalda mér gott með illu, sýna mér fjandskap, af því ég legg stund á það sem gott er.-22- Yfirgef mig ekki, Drottinn, Guð minn, ver ekki fjarri mér,-23- skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín.

 

 

 

Leitaðu ef þú ert, kátur, hreykinn

í Sálma

19 96

Leitaðu ef þú ert sekur, sakbitinn,

í Sálma

19 32 38 5 1