Ég segi við Drottin: Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.   

Sálmur 5

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-1- Til söngstjórans. Með hljóðpípu. Davíðssálmur.-2- Heyr orð mín, Drottinn, gef gaum að andvörpum mínum.-3- Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn, því að til þín bið ég.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-4- Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.-5- Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki, hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.-6- Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér, þú hatar alla er illt gjöra.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-7- Þú tortímir þeim, sem lygar mæla, á blóðvörgum og svikurum hefir Drottinn andstyggð.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-8- En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína, fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.-9- Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, gjör sléttan veg þinn fyrir mér.-10- Einlægni er ekki til í munni þeirra, hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-11- Dæm þá seka, Guð, falli þeir sakir ráðagjörða sinna, hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.-12- Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu, því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.-13- Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta, hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.

Leitaðu ef þú ert, kátur, hreykinn

í Sálma

19 96

Leitaðu ef þú ert sekur, sakbitinn,

í Sálma

19 32 38 5