Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.   

Sálmur 51

 

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-1- Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,-2- þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.-3- Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.-4- Þvo mig hreinan af misgjörð minni, hreinsa mig af synd minni,-5- því að ég þekki sjálfur afbrot mín, og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.-6- Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur, er þú talar, hreinn, er þú dæmir.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-7- Sjá, sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig.-8- Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra, og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!-9- Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn, þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.-10- Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefir sundurmarið.-11- Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.-12- Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.-13- Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.-14- Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda,-15- að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-16- Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.-17- Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-18- Þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum annars mundi ég láta þær í té og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. 19- Guði þekkar fórnir eru sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.-20- Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem!-21- Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

 

Leitaðu ef þú ert, kátur, hreykinn

í Sálma

19 96

Leitaðu ef þú ert sekur, sakbitinn,

í Sálma

19 32 38