28- því að Drottinn hefir mætur á réttlæti og yfirgefur ekki sína trúuðu. Þeir verða eilíflega varðveittir, en niðjar óguðlegra upprætast.   

Sálmur 3

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -1- Sálmur Davíðs, þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum.-2- Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér.-3- Margir segja um mig: Hann fær enga hjálp hjá Guði! Sela

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -4- En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt.-5- Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. Sela -6- Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér.-7- Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar.

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -8- Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna.-9- Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn! Sela

 

Leitaðu ef þú ert: óöruggur, óframfærinn,

í Sálma

3 5 12 91

Ef þú ert, haldinn hræðslu og ótta

þá leitaðu í Sálma

3 4 27 46 49 56 91 118