Munnur réttláts manns mælir speki og tunga hans talar það sem rétt er.   

Sálmur 91

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -1- Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta, sá er gistir í skugga Hins almáttka,

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -2- sá er segir við Drottin: Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á!-3- Hann frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drepsótt glötunarinnar,-4- hann skýlir þér með fjöðrum sínum, undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.-5- Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar, eða örina, sem flýgur um daga,-6- drepsóttina, er reikar um í dimmunni, eða sýkina, er geisar um hádegið.

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -7- Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar, þá nær það ekki til þín.-8- Þú horfir aðeins á með augunum, sér hversu óguðlegum er endurgoldið.-9- Þitt hæli er Drottinn, þú hefir gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.-10- Engin ógæfa hendir þig, og engin plága nálgast tjald þitt.-11- Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.-12- Þeir munu bera þig á höndum sér, til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.-13- Þú skalt stíga ofan á höggorma og nöðrur, troða fótum ljón og dreka.

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -14- Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann, ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.-15- Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.-16- Ég metta hann með fjöld lífdaga og læt hann sjá hjálpræði mitt.

 

 

Ef þú ert, haldinn hræðslu og ótta

þá leitaðu í Sálma

3 4 27 46 49 56 91 118