Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn,   

Sálmur 9

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum.-2- Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum.

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. -3- Ég vil gleðjast og kætast yfir þér, lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti.-4- Óvinir mínir hörfuðu undan, hrösuðu og fórust fyrir augliti þínu.-5- Já, þú hefir látið mig ná rétti mínum og flutt mál mitt, setst í hásætið sem réttlátur dómari.-6- Þú hefir hastað á þjóðirnar, tortímt hinum óguðlegu, afmáð nafn þeirra um aldur og ævi.

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum.-7- Óvinirnir eru liðnir undir lok rústir að eilífu og borgirnar hefir þú brotið, minning þeirra er horfin.-8- En Drottinn ríkir að eilífu, hann hefir reist hásæti sitt til dóms.-9- Hann dæmir heiminn með réttvísi, heldur réttlátan dóm yfir þjóðunum.-10- Og Drottinn er vígi orðinn hinum kúguðu, vígi á neyðartímum.

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. -11- Þeir er þekkja nafn þitt, treysta þér, því að þú, Drottinn, yfirgefur eigi þá, er þín leita.-12- Lofsyngið Drottni, þeim er býr á Síon, gjörið stórvirki hans kunn meðal þjóðanna.

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. -13- Því að hann sem blóðs hefnir hefir minnst þeirra, hann hefir eigi gleymt hrópi hinna hrjáðu:-14- Líkna mér, Drottinn, sjá þú eymd mína, er hatursmenn mínir baka mér, þú sem lyftir mér upp frá hliðum dauðans,

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. -15- að ég megi segja frá öllum lofstír þínum, fagna yfir hjálp þinni í hliðum Síonardóttur.-16- Lýðirnir eru fallnir í gryfju þá, er þeir gjörðu, fætur þeirra festust í neti því, er þeir lögðu leynt.

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. -17- Drottinn er kunnur orðinn: Hann hefir háð dóm, hinn óguðlegi festist í því, er hendur hans höfðu gjört. Strengjaleikur. Sela -18- Hinir óguðlegu hrapa til Heljar, allar þjóðir er gleyma Guði.

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. -19- Hinum snauða verður eigi ávallt gleymt, von hinna hrjáðu bregst eigi sífellt.-20- Rís þú upp, Drottinn! Lát eigi dauðlega menn verða yfirsterkari, lát þjóðirnar hljóta dóm fyrir augliti þínu.-21- Skjót lýðunum skelk í bringu, Drottinn! Lát þá komast að raun um, að þeir eru dauðlegir menn. Sela

 

Ég segi við Drottin: Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig. Leitaðu í Sálma Davíðs

Leitaðu ef þú ert í

Ég segi við Drottin: Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig. einsemd, eða ert einmana

í Sálma

9 10 12 13 27 40 43