Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur   

Sálmur 73

 Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! -1- Asafs-sálmur. Vissulega er Guð góður við Ísrael, við þá sem hjartahreinir eru. -2- Nærri lá, að fætur mínir hrösuðu, lítið vantaði á, að ég skriðnaði í skrefi, -3- því að ég fylltist gremju út af hinum hrokafullu, þegar ég sá gengi hinna guðlausu. -4- Þeir hafa engar hörmungar að bera, líkami þeirra er heill og hraustur. -5- Þeim mætir engin mæða sem öðrum mönnum, og þeir verða eigi fyrir neinum áföllum eins og aðrir menn. -6- Fyrir því er hrokinn hálsfesti þeirra, þeir eru sveipaðir ofríki eins og yfirhöfn. -7- Frá mörhjarta kemur misgjörð þeirra, girndir þeirra ganga fram úr öllu hófi. -8- Þeir spotta og tala af illsku, mæla kúgunarorð í mikilmennsku sinni. -9- Með munni sínum snerta þeir himininn, en tunga þeirra er tíðförul um jörðina.

  Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! -10- Fyrir því aðhyllist lýðurinn þá og teygar gnóttir vatns.  -11- Þeir segja: Hvernig ætti Guð að vita og Hinn hæsti að hafa nokkra þekkingu? -12-  Sjá, þessir menn eru guðlausir, og þó lifa þeir ætíð áhyggjulausir og auka efni sín.

Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! -13- Vissulega hefi ég til ónýtis haldið hjarta mínu hreinu og þvegið hendur mínar í sakleysi,

-14- ég þjáist allan daginn, og á hverjum morgni bíður mín hirting.

-15- Ef ég hefði haft í hyggju að tala þannig, sjá, þá hefði ég brugðið trúnaði við kyn barna þinna. -16- En ég hugsaði um, hvernig ég ætti að skilja það, það var erfitt í augum mínum, -17- uns ég kom inn í helgidóma Guðs og skildi afdrif þeirra  18- Vissulega setur þú þá á sleipa jörð, þú lætur þá falla í rústir. -19- Sviplega verða þeir að auðn, líða undir lok, tortímdir af skelfingum. -20- Eins og draum er maður vaknar, þannig fyrirlítur þú, Drottinn, mynd þeirra, er þú ríst á fætur.

Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!-21- Þegar beiskja var í hjarta mínu og kvölin nísti hug minn, -22- þá var ég fáráðlingur og vissi ekkert, var sem skynlaus skepna gagnvart þér. -23- En ég er ætíð hjá þér, þú heldur í hægri hönd mína. -24- Þú munt leiða mig eftir ályktun þinni, og síðan munt þú taka við mér í dýrð. -25- Hvern á ég annars að á himnum? Og hafi ég þig, hirði ég eigi um neitt á jörðu. -26- Þótt hold mitt og hjarta tærist, er Guð bjarg hjarta míns og hlutskipti mitt um eilífð.

Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!-27- Því sjá, þeir sem fjarlægjast þig, farast, þú afmáir alla þá, sem eru þér ótrúir.

-Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! 28- En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég hefi gjört Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum.

Leitaðu í Sálma Davíðs

ef þú ert ráðalaus

í Sálma

10 12 73