En miskunn Drottins við þá er óttast hann varir frá eilífð til eilífðar, og réttlæti hans nær til barnabarnanna,   

Sálmur 70

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-1- Til söngstjórans. Davíðssálmur. Minningarljóð.

-2- Guð, lát þér þóknast að frelsa mig, Drottinn, skunda mér til hjálpar.
-3- Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.
-4- Lát þá hörfa undan sakir smánar sinnar, er hrópa háð og spé.
-5- En allir þeir er leita þín, skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði þínu, skulu sífellt segja: Vegsamaður sé Guð!

-6- Ég er þjáður og snauður, hraða þér til mín, ó Guð. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, dvel eigi, Drottinn! 

Leitaðu ef þú ert: smánaður, móðgaður,

í sálma

41 70