Sálmur 119

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-129- Reglur þínar eru dásamlegar, þess vegna heldur sál mín þær.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-130- Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fávísa vitra.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-131- Ég opna munninn af ílöngun, því ég þrái boð þín.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-132- Snú þér til mín og ver mér náðugur, eins og ákveðið er þeim er elska nafn þitt.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-133- Gjör skref mín örugg með fyrirheiti þínu og lát ekkert ranglæti drottna yfir mér.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-134- Leys mig undan kúgun manna, að ég megi varðveita fyrirmæli þín.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-135- Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn og kenn mér lög þín.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-136- Augu mín fljóta í tárum, af því að menn varðveita eigi lögmál þitt.