Sálmur 6 

Iðrunar sálmur

 
Drottinn, 
refsa mér ekki í reiði þinni 
og tyfta mig ekki í gremi þinni.
Líkna mér, Drottinn, 
því að ég örmagnast, 
lækna mig, Drottinn, 
því að bein mín tærast.

  
Sál mín er óttaslegin, 
en þú, ó Drottinn hversu lengi?
Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, 
hjálpa mér sakir elsku þinnar.
Því að enginn minnist þín í dánarheimum, 
hver skyldi lofa þig hjá Helju?
Ég er þreyttur af andvörpum mínum, 
ég lauga rekkju mína í tárum, 
læt hvílu mína flóa hverja nótt.


Augu mín eru döpruð af harmi, 
orðin sljó sakir allra óvina minna.
Farið frá mér, allir illgjörðamenn, 
því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína.
Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, 
Drottinn tekur á móti bæn minni.
Allir óvinir mínir skulu verða til skammar 
og skelfast mjög, 
hraða sér sneyptir burt.