Sálmur 3

 Sálmur Davíðs, 
þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum.


Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -2- Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér.
-3- Margir segja um mig: Hann fær enga hjálp hjá Guði!
 

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -4- En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt.
-5- Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. 
-6- Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér.
-7- Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar.

Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, -8- Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna.
-9- Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn!