En miskunn Drottins við þá er óttast hann varir frá eilífð til eilífðar, og réttlæti hans nær til barnabarnanna,   

Sálmur 25

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -1- Davíðssálmur.

-2-  Til þín, Drottinn, hef ég sál mína, Guð minn, þér treysti ég. Lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér. -3- Hver sá er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar, þeir verða til skammar, er ótrúir eru að raunalausu.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.  -4- Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína.-5- Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér, því að þú ert Guð hjálpræðis míns, allan daginn vona ég á þig.-6- Minnst þú miskunnar þinnar, Drottinn, og kærleiksverka, því að þau eru frá eilífð.-7- Minnst eigi æskusynda minna og afbrota, minnst mín eftir elsku þinni sakir gæsku þinnar, Drottinn.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.-8- Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn. -9- Hann lætur hina hrjáðu ganga eftir réttlætinu og kennir hinum þjökuðu veg sinn. -10- Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá er gæta sáttmála hans og vitnisburða.

 Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.-11- Sakir nafns þíns, Drottinn, fyrirgef mér sekt mína, því að hún er mikil.

 Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.-12- Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann er hann á að velja.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -13- Sjálfur mun hann búa við hamingju, og niðjar hans eignast landið.

 Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.-14- Drottinn sýnir trúnað þeim er óttast hann, og sáttmála sinn gjörir hann þeim kunnan.

 Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.-15- Augu mín mæna ætíð til Drottins, því að hann greiðir fót minn úr snörunni. -16- Snú þér til mín og líkna mér, því að ég er einmana og hrjáður.-17- Angist sturlar hjarta mitt, leið mig úr nauðum mínum. -18- Lít á eymd mína og armæðu og fyrirgef allar syndir mínar. -19- Lít á, hversu margir óvinir mínir eru, með rangsleitnishatri hata þeir mig.-20- Varðveit líf mitt og frelsa mig, lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita ég hælis.

Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. -21- Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín, því að á þig vona ég.-22- Frelsa Ísrael, ó Guð, úr öllum nauðum hans.

 

Leitaðu í Sálma Davíðs,
 
ef þú ert: aðþrengdur, nauðstaddur, og miður þín

13 25 31 40 10