Vegstikur 8. dags mánaðarins




Textinn er tekin úr: Hebreabréfið 13:6-6
Drottinn er minn hjálpari, 
eigi mun ég óttast. 
Hvað geta mennirnir gjört mér?

Textinn er tekin úr: Rómverjabréfið 8:35-37
Hver mun gjöra oss viðskila 
við kærleika Krists? 
Mun þjáning geta það 
eða þrenging, 
ofsókn, hungur eða nekt, 
háski eða sverð?.. 

Í öllu þessu vinnum vér fullan sigur 
fyrir fulltingi hans, 
sem elskaði oss.

Textinn er tekin úr:
Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða 
og fá að því búnu ekki meira að gjört. 

Ég skal sýna yður, hvern þér eigið að hræðast. 
Hræðist þann, er hefur vald að deyða 
og að því búnu varpa í helvíti. 
Já, ég segi yður, 
hræðist hann. 

Textinn er tekin úr: Matteusarguðspjall 5:10-12
Sælir eru þeir, 
sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir, 
því að þeirra er himnaríki.

Sælir eruð þér, 
þá er menn smána yður, 
ofsækja og ljúga á yður öllu illu 
mín vegna. 

Verið glaðir og fagnið, 
því að laun yðar eru mikil 
á himnum.

Textinn er tekin úr: Postulasagan 20:24-24
 En mér er líf mitt einskis virði, 
fái ég aðeins að fullna skeið mitt 
og þá þjónustu, sem Drottinn Jesús fól mér: 
Að bera vitni fagnaðarerindinu 
um Guðs náð.

Textinn er tekin úr: Sálmarnir 119:46-46
Ég mun tala um reglur þínar 
frammi fyrir konungum, 
og eigi skammast mín,