Vegstikur
3. dags mánaðarins
![Texti: Opinberunarbókin 1:4-5](../../boltar_%20linur/ball8Multicol.gif)
Náð sé með yður ..
frá Jesú Kristi, ..
Hann elskar oss
og leysti oss frá syndum vorum
með blóði sínu.
![Texti: Ljóðaljóðin 8:6-7](../../boltar_%20linur/ball8Multicol.gif)
Því að elskan er sterk eins og dauðinn,
Mikið vatn getur ekki slökkt elskuna ...
![Texti: Jóhannesarguðspjall 15:13-13](../../boltar_%20linur/ball8Multicol.gif)
Enginn á meiri kærleik en þann
að leggja líf sitt í sölurnar
fyrir vini sína.
![Texti: 1. Pétursbréf 2:24-24](../../boltar_%20linur/ball8Multicol.gif)
Hann bar sjálfur syndir vorar
á líkama sínum upp á tréð,
til þess að vér skyldum deyja frá syndunum
og lifa réttlætinu.
Fyrir hans benjar eruð vér læknaðir.
![Texti: Efesusbréf 1:7-7](../../boltar_%20linur/ball8Multicol.gif)
Í honum, fyrir hans blóð
eigum vér endurlausnina og
fyrirgefningu afbrota vorra.
Svo auðug er náð hans,
sem hann gaf oss ríkulega ...
![Texti: 1. Korintubréf 6:11-11](../../boltar_%20linur/ball8Multicol.gif)
Þér létuð laugast,
þér eruð helgaðir,
þér eruð réttlættir
fyrir nafn Drottins Jesú Krists
.. fyrir anda vors Guðs.
![Texti: 1. Pétursbréf 2:9-9](../../boltar_%20linur/ball8Multicol.gif)
Þér eruð útvalin kynslóð,
konunglegt prestafélag,
heilög þjóð,
eignarlýður,
til þess að þér skuluð
víðfrægja dáðir hans,
sem kallaði yður
frá myrkrinu
til síns undursamlega ljóss.
![Texti: Rómverjabréfið 12:1-1](../../boltar_%20linur/ball8Multicol.gif)
Því brýni ég yður,
bræður, að þér,
vegna miskunnar Guðs,
bjóðið fram sjálfa yður
að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn.
Það er sönn og rétt guðsdýrkun
af yðar hendi.
|