- Drottinn þekkir daga ráðvandra, og arfleifð þeirra varir að eilífu. 

Sálmur 4  

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
 Svara mér, er ég hrópa, 
þú Guð réttlætis míns! 
Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, 
ver mér náðugur og heyr bæn mína.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
 Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? 
Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? Sela 

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
Þér skuluð samt komast að raun um, 
að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, 
að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. 
Skelfist og syndgið ekki. 
Hugsið yður um í hvílum yðar 
og verið hljóðir. Sela

 Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
 Færið réttar fórnir og treystið Drottni.
Margir segja: Hver lætur oss hamingju líta? 
Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði 
en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.  
Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, 
því að þú, Drottinn, 
lætur mig búa óhultan í náðum.