Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum.   

Sálmur 15 

 Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
 Drottinn, hver fær að gista í tjaldi þínu,
hver fær að búa á fjallinu þínu helga?

 
Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
 Sá er fram gengur í flekkleysi
og iðkar réttlæti
og talar sannleik af hjarta,

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
sá er eigi talar róg með tungu sinni,
eigi gjörir öðrum mein
og eigi leggur náunga sínum svívirðing til;

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
sem fyrirlítur þá er illa breyta,
en heiðrar þá er óttast Drottin,
sá er sver sér í mein og bregður eigi af,

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
sá er eigi lánar fé sitt með okri
og eigi þiggur mútur gegn saklausum
sá er þetta gjörir,
mun eigi haggast um aldur.