Hjálp réttlátra kemur frá Drottni, hann er hæli þeirra á neyðartímum.   

Sálmur 12

 

 Davíðssálmur

Hjálpa þú, Drottinn,-2- Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.

Hjálpa þú, Drottinn, -3- Lygi tala þeir hver við annan, með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir. -4- Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum er tala drambsamleg orð,

Hjálpa þú, Drottinn, -5- þeim er segja: Með tungunni munum vér sigra, varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?-6- Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku vil ég nú rísa upp, segir Drottinn. Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana. 

Hjálpa þú, Drottinn, -7- Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.-8- Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur.-9- Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna.