Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum.   

Sálmur 10 

 Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum. -1- Hví stendur þú fjarri, Drottinn, hví byrgir þú augu þín á neyðartímum?

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum. -2- Hinn óguðlegi ofsækir hina hrjáðu í hroka sínum, þeir flækjast í vélum þeim, er þeir hafa upp hugsað.-3- Hinn óguðlegi lofar Guð fyrir það, er sála hans girnist, og hinn ásælni prísar Drottin, sem hann fyrirlítur.

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum. -4- Hinn óguðlegi segir í drambsemi sinni: Hann hegnir eigi! Guð er ekki til svo hugsar hann í öllu.-5- Fyrirtæki hans heppnast ætíð, dómar þínir fara hátt yfir höfði hans, alla fjandmenn sína kúgar hann.-6- Hann segir í hjarta sínu: Ég verð eigi valtur á fótum, frá kyni til kyns mun ég eigi í ógæfu rata.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -7- Munnur hans er fullur af formælingum, svikum og ofbeldi, undir tungu hans býr illska og ranglæti.

-8- Hann situr í launsátri í þorpunum, í skúmaskotinu drepur hann hinn saklausa, augu hans skima eftir hinum bágstöddu.-9- Hann gjörir fyrirsát í fylgsninu eins og ljón í skógarrunni; hann gjörir fyrirsát til þess að ná hinum volaða, hann nær honum í snöru sína, í net sitt.-10- Kraminn hnígur hann niður, hinn bágstaddi fellur fyrir klóm hans.-11- Hann segir í hjarta sínu: Guð gleymir því, hann hefir hulið auglit sitt, sér það aldrei.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-12- Rís þú upp, Drottinn! Lyft þú upp hendi þinni, Guð! Gleym eigi hinum voluðu.-13- Hvers vegna á hinn óguðlegi að sýna Guði fyrirlitningu, segja í hjarta sínu: Þú hegnir eigi?-14- Þú gefur gaum að mæðu og böli til þess að taka það í hönd þína. Hinn bágstaddi felur þér það; þú ert hjálpari föðurlausra.-15- Brjót þú armlegg hins óguðlega, og er þú leitar að guðleysi hins vonda, finnur þú það eigi framar.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -16- Drottinn er konungur um aldur og ævi, heiðingjum er útrýmt úr landi hans.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -17- Þú hefir heyrt óskir hinna voluðu, Drottinn, þú eykur þeim hugrekki, hneigir eyra þitt.-18- Þú lætur hina föðurlausu og kúguðu ná rétti sínum. Eigi skulu menn af moldu framar beita kúgun.