Sálmur 119

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
 Sjá þú eymd mína og frelsa mig, 
því að ég hefi eigi gleymt lögmáli þínu.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
Flyt þú mál mitt og leys mig, 
lát mig lífi halda samkvæmt fyrirheiti þínu.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
 Hjálpræðið er fjarri óguðlegum, því að þeir leita eigi fyrirmæla þinna.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
 Mikil er miskunn þín, Drottinn, lát mig lífi halda eftir ákvæðum þínum.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
 Margir eru ofsækjendur mínir og fjendur, 
en frá reglum þínum hefi ég eigi vikið.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
 Ég sé trúrofana og kenni viðbjóðs, 
þeir varðveita eigi orð þitt.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
 Sjá, hversu ég elska fyrirmæli þín, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir miskunn þinni.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
 Allt orð þitt samanlagt er trúfesti, og hvert réttlætisákvæði þitt 
varir að eilífu.