Sálmur 119

73- Hendur þínar hafa gjört mig og skapað, veit mér skyn, að ég megi læra boð þín.

-74- Þeir er óttast þig sjá mig og gleðjast, því að ég vona á orð þitt.

-75- Ég veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir og að þú hefir lægt mig í trúfesti þinni.

-76- Lát miskunn þína verða mér til huggunar, eins og þú hefir heitið þjóni þínum.

-77- Lát miskunn þína koma yfir mig, að ég megi lifa, því að lögmál þitt er unun mín.

-78- Lát ofstopamennina verða til skammar, af því að þeir kúga mig með rangsleitni, en ég íhuga fyrirmæli þín.

-79- Til mín snúi sér þeir er óttast þig og þeir er þekkja reglur þínar.

-80- Hjarta mitt sé grandvart í lögum þínum, svo að ég verði eigi til skammar.