Sálmur 119

 

-58- Ég hefi leitað hylli þinnar af öllu hjarta, ver mér náðugur samkvæmt fyrirheiti þínu.

-59- Ég hefi athugað vegu mína og snúið fótum mínum að reglum þínum.

-60- Ég hefi flýtt mér og eigi tafið að varðveita boð þín.

-61- Snörur óguðlegra lykja um mig, en lögmáli þínu hefi ég eigi gleymt.

-62- Um miðnætti rís ég upp til þess að þakka þér þín réttlátu ákvæði.

-63- Ég er félagi allra þeirra er óttast þig og varðveita fyrirmæli þín.

-64- Jörðin er full af miskunn þinni, Drottinn, kenn mér lög þín.