Sálmur 119

 

-42- að ég fái andsvör veitt þeim er smána mig, því að þínu orði treysti ég.

-43- Og tak aldrei sannleikans orð burt úr munni mínum, því að ég bíð dóma þinna.

-44- Ég vil stöðugt varðveita lögmál þitt, um aldur og ævi,

-45- þá mun ég ganga um víðlendi, því að ég leita fyrirmæla þinna,

-46- þá mun ég tala um reglur þínar frammi fyrir konungum, og eigi skammast mín,

-47- og leita unaðar í boðum þínum, þeim er ég elska,

-48- og rétta út hendurnar eftir boðum þínum, þeim er ég elska, og íhuga lög þín.